25.02.2009 11:36:51 / gudulf
Jæja, mér er víst ekki til setunnar boðið ef mér á að takast að skrifa annað blogg í febrúar.
Það er svosem ekki mikið að frétta, flest við það sama hér og verið hefur.
Um síðustu helgi fór ég með kennurunum við Grunnskóla Hornafjarðar í skólaheimsóknir á suðurlandi og síðan héldum við árshátíð á Klaustri. Það ver gríðarlega vel heppnuð og skemmtileg ferð, gaman að fara með gömlum vinnufélögum svona á rúntinn.
Í þessari viku er opin vika í FAS og mér finnst unglingurinn nú ekki vera neitt upprifinn, notar tímann ekki mikið í að prófa nýja hluti (rúmið telst gamall hlutur), hann missti t.d. af rútunni í morgun þegar farið var til Egilsstaða, en hvað skal segja þetta er orðið hálf fullorðið og verður að taka eigin ákvarðanir.
Prinsessan spilaði á sínum fyrstu tónleikum í tónskólanum í gær. Það gekk ágætlega, hún var dálítið stressuð enda vissi hún ekki af þessu fyrr en tveimur tímum fyrir tónleika og náði því ekki að æfa mikið.
Hún var svo með tvær vinkonur í gistingu og svo var farið extra snemma á fætur í morgun svo ég gæti greitt og málað mannskapinn fyrir öskudagsgleðina. Vona að þær skemmti sér vel.
Jæja man nú ekki eftir mikið meiru svona af fjölskyldu spjalli
Heyrumst síðar
»
04.02.2009 14:38:54 / gudulf
Þetta fer nú að verða svona mánaðarlegt hjá mér frekar en daglegt. Ég verð að viðurkenna að þetta er nú ekki til að hreykja sér af þessi ritleti eins og margt er að gerast í þjóðfélaginu sem vert væri að skrifa um. Hinsvegar hef ég aldrei farið út í pólitík hér og ætla mér ekki að byrja á því núna þó af nógu væri að taka.
Hér fyrir austan gengur allt sinn vanagang þó hér séu óvneju miklar stillur og frost, við heiðskýran himin og tæra fjallasýn dag eftri dag. Jóa dreymdi fyrir daglátum og það kæmi okkur því ekki á óvart þó þetta veður héldist næstu 3 vikur eða svo með frosti og e.t.v. fannfergi, a.m.k. vetrarhörkur næstu vikur.
Allt annað gengur sinn vana gang. Ég þarf að skreppa tvisvar til Rvíkur á næstu dögum en svo er ég laus í nokkurn tíma.
Prinsessuna langar svo í skauta er nokkur með skauta sem hann notar ekki nr. 39 ? Ef svo er væri gott að heyra frá ykkur.
Unglingurinn er bæði að læra og vinna. Skrapp á stjórnaskiptaball hjá bróður sínum upp að Laugarvatni um síðustu helgi. Þessa helgi er vinur hans sem flutti í bæinn í fyrra að koma í heimsókn svo hann verður sennilega upptekinn við það. Lítið annað að frétta sem ég man eftir. Prinsessan hélt upp á 10 ára afmælið í Rvík og þá komum ýmsir sem hún hafði aldrei áður getað boðið í afmælið sitt, henni þótti það nú ekki leiðinlegt.
Jæja, reyni að skrifa allavega einu sinni enn í þessum mánuði.
Kveðjur að austan.
»
16.01.2009 15:54:57 / gudulf
Jæja, ég er búin að vera með óskaplegan móral yfir því að muna aldrei eftir að skrifa neitt hér en þegar ég fer yfir listann af bloggsíðum annarra þá sé ég að ég þarf ekkert að skammast mín. Hér er sjáldgæft að sjá blogg yngra en frá síðasta ári og á sumar síður hefur ekki verið skrifað síðan í haust.
Svo gott fólk, takið ykkur nú saman í andlitinu og farið að skrifa. Af nægu er að taka þó flest sé auðvitað óskaplega sorglegt og erfitt eins og ástandið á Gasa og atvinnuleysið. En það er alltaf eitthvað ef vel er gáð þó ekki sé nema að rífast í öðrum eins og ég geri hehehe.
Við prinsessan erum að fara í bæinn eftir helgina ég í staðlotu og hún ætlar að halda upp á afmælið sitt og geta loksins boðið frændgarðinum. Við erum að spá í að fá íbúð svo við þurfum ekki að vera inni á öðrum með svoleiðis tilstand. Meira um það þegar nær dregur.
Kveðjur að austan
»
08.01.2009 09:11:55 / gudulf
Jæja, nú eru væntanlega allir hættir að kíkja hérna inn. Ég hef hreinlega ekki tekið upp tölvu allt jólafríið en nú er hvunndagurinn tekinn við af fullum krafti á ný og því ekki annað að gera en að byrja aftur að láta frá sér heyra.
Ég er í augnablikinu í Rvík í staðlotu í H'I svo þess vegna er tölvan uppi á borðinu. Prinsessan kom með því hún þurfti að kíkja til tannréttingalæknisins og fá stífari boga til að toga í tennurnar. Hún hefur verið með mér í skólanum og þykir það heldur leiðinlegt.
Ég fór í skelfilegan búðarleiðangur í gær á skiptibókamarkað til að kaupa tvær bækur fyrir unglinginn og selja eitthvað af gömlu bókunum hans. Hann fékk nú lítið fyrir gömlu bækurnar, næstum ónotaðar og ég þurftir að bíða í biðröðum í hátt á annan klukkutíma.
Nóg vælt í bili. Ég set restina af málsháttunum inn næst þegar ég er heima og læt mér detta í hug að blogga. Þetta málsháttadagatal var hrein snilld og prinsessan hefur lofað að gera svona aftur næsta vetur.
Best að snúa sér að náminu.
Heyrumst síðar.
»
16.12.2008 10:52:09 / gudulf
Jæja, þá er maður kominn í jólafrí og ekki get ég nú hreykt mér af því að hafa verið duglegri við að skrifa hér þó ég sé hætt að læra út í eitt. En ég ætla allavega að setja hér málsháttadagatalið það sem komið er. Sumir málshættirnir eru augljóslega fengnir að láni að minnsta kosti að hluta til en aðrir eru innblásnir af árstíð helgi og friðar.
1. des: Víða er þvotturinn brotinn.
2. des: Margur bóndinn dregur dilk á eftir sér.
3. des: Oft eru bílstjórarnir útkeyrðir.
4. des: Góður er ávalt góður.
5. des: Alltaf svífur vendari yfir Höfn og öllum stöður þar sem góðmennska er.
6. des: Syngjandi klukka er best.
7, des: Barnið vex en brókin ekki.
8. des: Misjöfn eru morgunverkin.
9. des: Brostu framan í heiminn þá brosir heimurinn framan í þig.
10. des: Mjúkar eru hendur foreldra.
11. des: Oft er slökkviliðsmaðurinn eldklár.
12. des: Gott er að koma heim.
13. des: Sjaldan er góður matur of oft tugginn.
14. des: Þú verndar allt gott Guð.
15. des: Morgunstund gefur gull í mund.
16. des: Allt er hey í harðindum ... nema hey hey síbabilúla she´s my baby.
Njótið vel og hafið það gott á aðventunni.
»
08.12.2008 20:09:40 / gudulf
Jæja, þá er ég í Reykjavík eina ferðina enn. Varð að fara aftur til að laga verkefni sem á að skilast í næstu viku.
Til hamingju með tónleikana og flutninginn á aðventusálminum mamma.
Flýtti ferðinni til þess að hafa meiri tíma til að lesa undir próf og til að geta verið meira með prinsessunni á aðventunni. Varð þó að fórna því að heyra prinsessuna syngja á aðventukvöldi í Kirkjunni í gærkvöldi. Steinarr bróðir fór fyrir mig og tók herlegheitin upp svo ég fæ að hlusta og horfa þegar ég kem heim. Svo var hringt í morgun og allt í steik, prinsessan orðin hás með hita og skemmtilegheit. Ég varð að meta í gegn um síman um ástandið og leyfði henni að vera heima hjá stóra bróður sínum sem var í upplestrarfríi sem betur fer. Þau eyddu svo deginum saman systkynin og hann hellti upp á sjóðandi hunangsvatn handa henni með reglulegu millibili og færði henni verkjatöflur við höfuðverknum.
Sem betur fer komst Jói heim í dag, ekki svo mjög seint, til að sinna sjúklingnum. Ég kemst heim á morgun en þó ekki nógu snemma til að geta sungið með kórnum á jólatónleikunum en svona er lífið það er alltaf eitthvað einhversstaðar sem maður missir af.
Kveðja úr borginni.
»
06.12.2008 12:07:04 / gudulf
Ég man núna málshátt Agnesar frá 2. des.
Hann hljóðar svo:
" Oft draga bændur dilk á eftir sér"
Meira seinna.
»
03.12.2008 09:23:57 / gudulf
Já, mér sýnist að nú sé svo komið að ég hafi ekki tíma fyrir meira en vikulegar skriftir. Ef til vill á þetta nú eftir að breytast fyrir jól.
Unglingurinn skreið upp á loft í gær og náði í kassana með jólaskrautinu fyrir systur sína. Hún ætlar sér að gera stóra hluti í vikunni, búa til jólaland og setja upp aðventuljós o.fl. o.fl. Ég er búin að lofa henni að þegar ég er búin í prófum og búin að skila síðasta verkefni, sem verður í kring um 15. des. muni ég leyfa henni að halda jólanáttfatapartí fyrir stelpurnar í bekknum, mála piparkökur og gera piparkökuhús. Það verður væntanlega subbulegt en hlýtur að mælast vel fyrir, svo hef ég svo mikinn tíma ekki satt ef ég er búin 15. des. Ég lifi að minnsta kosti í þeim draumi og hún sér það i hyllingum.
Talandi um prinsessuna á aðventu. Hún bjó til jóladagatal með málsháttum sem opnst skulu einn á dag. Sá fyrsti og sá sem ég opnaði í morgun áttu einstaklega vel við heimilið hjá okkur.
1. des. var: " Víða er þvottur brotinn." og
3. des. var: " Oft eru bílstjórar útkeyrðir."
Reyni að seja hér inn málshátt dagsins þegar ég hef tíma til.
Er að skreppa í bæinn í dag til að taka eitt munnlegt próf og kynna verkefni. Vonast til að komast heim á föstudag.
Kveðja að austan.
»
21.11.2008 14:41:20 / gudulf
Komið þið sæl !
Þá er kominn föstudagur með tilheyrandi uppistandi og helgi framundan. Mikið að gera þessa helgi, ég hef lofað mér í mállingavinnu fyrir leikfélagið lopa núna seinnipartinn og á morgun laugardag er langur laugardagur hjá kvennakórnunm, byrjar strax kl. 9 svo það verður ekki mikið um það að maður geti sofið út þessa helgina.
Svo fer ég í bæinn í mína næst síðustu ferð á þessu ári á sunnudag.
Engin lognmolla í gangi. 
Annars er allt þokkalega gott að frétta og ekkert hræðilegt hefur komið fyrir. Verð í búðinni orðið ansi hátt en hér er ekki atvinnuleysi og reyndar er hér allt á góðri uppleið. Nýja sundlaugin að verða tilbúin, verið að vinna jarðvinnu undir nýtt hverfi og bærinn að fara að byggja tvö ný parhús.
Allt hreinlega í lukkunarvelstandi. Ef ykkur langar orðið að lesa uppbyggilegar og skemmtilegar fréttir þá skuluð þið bara fara á www.hornafjordur.is þar er enginn væll í fólki.
Verð að ljúka þessu með brandara sem ég fékk sendann frá Ásu vinkonu, þið skiljið hann nú flest þó hann sé á ensku.

»
15.11.2008 16:02:42 / gudulf
Ohhh frábært !! 
Framundan er heil vika heima hjá börnunum. Reyndar þarf ég að vera að vinna en það er nú ekki aðal málið heldur að þurfa ekki að þvælast.
Prinsessan var að koma úr sundi með Stebba vini sínum og þau eru að plana rosa spilakvöld heima hjá mér. Það er nú í lagi ef þau eru bara til í að fresta því fram á morgundaginn, hef eiginlega ekki tíma í dag.
Unglingurinn brá sér á skólaball hjá stóra bróður sínum um helgina. Ég hef ekkert af þeim frétt en vona að allt sé í sómanum. 
Ekki mikið annað en vinna framundan, ætla samt að reyna að slíta mig lausa og fara á Bingó til að styrkja samkórinn á morgun.
Jæja heyrumst síðar.
»
29.10.2008 22:56:15 / gudulf
Þá er maður komin aftur í bæinn. Ég var á verkefnafundi í morgun og fyrirlestri seinnipartinn. Verkefni á morgun og svo staðlota á föstudag og laugardag. Prinsessan og pabbinn eru á leiðinni í bæinn, þar sem hún ætlar að fara aftur í Lauganesskóla og vera með bekknum sínum þar. Unglingurinn er líka að koma á föstudaginn, enn ein erfið og kvalafull læknisheimsókn framundan á mánudag. Eftir það förum við heim og ég næ að vera heima í viku en svo verð ég að vera lungað úr þarnæstu viku í bænum. í næstu tvær vikur þarf ég svo að vera hér á miðvikudag og fimmtudag og svo þriðjud. og miðvikud. eftir það. Hroðaleg tilhugsun því það fer svo mikill tími í ferðirnar, ég hreinlega hef ekki tíma í þetta en ekki hefur maður efni á að taka fljótlegu leiðina og fljúga.
Jæja nóg vælt í bili
Kv.
Gulla
»
23.10.2008 08:58:12 / gudulf
Ekki veit ég hvort nokkur les þetta lengur, eru ekki allir komnir með facebook í staðin fyrir blogg?
Ég ætla samt að setja inn smávegis svona bara rétt í blá lokin á vikunni. Ég kom heim í gærkvöldi úr þvælingi um norður og austurland, á málstofu NEED sem er verkefni tengt háskólasetrinu og Vatnajökuls þjóðgarði. Búin að vera löng en skemmtileg ferð. Við verðum hér á Höfn í dag en á morgun heldur hópurinn áfram. Ég fer með þeim í Skaftafell en sný við þar, til þess að vera með ML stelpunum á Hala yfir helgina. Börnin búin að ganga sjálfala að mestu þessa vikuna nema þegar pabbi þeirra er heima. Jæja málstofur eru að hefjast. Verð að þjóta.
Kv.
»
Síður:
1 2 3 ...
14